Skihotel Speiereck

Hótelið okkar er innréttað í hefðbundnum, austurrískum alpastíl.  Öll herbergin eru rúmgóð, útbúin baðherbergi m/ sturtu, sjónvarpi og hárþurrku og flest þeirra eru með aðgang að svölum. Einnig hefur hótelið góðan orðstír fyrir fjölbreytilega og holla matargerð.

Njótið persónulegrar þjónustu í vinalegu og afslöppuðu andrúmslofti, sem gerir hótelið einkum hentugt fyrir fjölskyldur og börn.

Á veturna bjóðum við upp á vikulegar uppákomur, svo sem heilt grillað svín og tírólahljómsveit sem spilar fyrir gesti með tilheyrandi stemningu, fondue-kvöld og hestasleðaferð að kvöldlagi.

Á sumrin er tilvalið að fara í gönguferðir og njóta fjalladýrðarinnar, en ótalmargir möguleikar eru einnig fyrir hjólreiðafólk og annað útivistarfólk.

 

Við bjóðum upp á:

Hvað er í boði í nágrenninu

Gönguparadís
Umhverfið býður upp á spennandi gönguleiðir og fjallgöngur fyrir alla aldurshópa. Við gefum með ánægju uppástungur og ráðleggingar að hinni fullkomnu gönguferð.

   

Fjölbreytt dægrastytting í Lungau   Aðlaðandi fjölskyldudagskrá, fjölmargir íþróttamöguleikar, vetraríþróttir...

   

Meira

 

 


Herbergin sem eru öll með salerni og sturtu / morgunverðarhlaðborð/ svalir/ upphitað herbergi fyrir skíðaskó/ skíðageymsla/ gufubað/ bókasafn/ gervihnattasjónvarp/ þráðlaust internet/ bílastæði/ garður/ 100 m í næsta lyftusvæði/ 50 m í skíðarútu/ 300 m í næsta skíðagönguspor/ 200 m niður í bæ.


Beint í tilboðin okkar

 

 
                 Myndasíða:
     Hér er hægt að skoða myndir af hótelinu, hóteleigendum og
     hressum gestum.
Meira ...