|
Menning og saga handan við hornið
Saga og menningararfleifð Lungau á rætur sínar að rekja alla leið til tíma Rómverja og eru því kastalar, gömul virki og önnur forn minnismerki algeng sjón þegar ferðast er um svæðið. Aðeins 100 km eru til Salzburgar, en á leiðinni blasir við Werfen-kastalinn sem hefur verið notaður við gerð þekktra kvikmynda eins og “Byssurnar við Navaron”. Salzburg er ekki aðeins þekkt sem fæðingarbær Mozarts, heldur einnig fyrir einstaklega vel varðveittar byggingar í barokkstíl. Sérstaklega er gaman að rölta um gamla bæinn eða Altstadt, en hann er skráður á heimsminjaskrá UNESCO.
|
|