Vetrarfrí á Skihotel Speiereck

 

St. Michael tekur gestum sínum opnum örmum í töfraheimi Alpanna með snævi þakta fjallatoppa, glitrandi snjó, kristaltært fjallaloft og síðast en ekki síst frábæra skíðaaðstöðu. Hótelið er aðeins í 100 m fjarlægð frá Grosseck–Speiereck skíðasvæðinu, en þar er hægt að komast úr 1.050 m hæð yfir í 2.400 m, sem er hæsti skíðatindurinn í Salzburgerland. Þar tekur fjörið við í lengstu skíðabrekku svæðisins sem er 12,6 km löng. Mjög auðvelt er að ferðast á milli svæðanna með skíðarútu sem stoppar rétt hjá hótelinu. Fyrir brettaáhugafólk eru frábærir brettagarðar í Aineck og Obertauern. Aðstæður fyrir gönguskíðafólk eru heldur ekki í verri kantinum og liggur næsta gönguskíðaspor í dalnum rétt fyrir neðan hótelið. Boðið er upp á leiðsögn um skíðasvæðið sé þess óskað. Doddi skíðakennari er þaulkunnugur svæðinu og bendir á skemmtilegustu brekkurnar og mesta púðursnjóinn – allt eftir óskum skíðamannsins. Mörgum þykir óhugsandi að ljúka ánægilegum skíðadegi án þess að staldra við á aprés-ski fjallakofunum þar sem afrekum dagsins er skolað niður með heitu kakói með rommi.

 
 
Skifahren,Snowboard

Skíði / Snjóbretti
Njótið skíðamennskunnar með yfir 200 km af brekkum í besta gæðaflokki.

meira >>

Langlaufen

Skíðaganga
Í Lungau er að finna lengsta samliggjandi skíðagönguspor Austurríkis – samtals rúmlega 220 km.

meira >>

       
Roden,Schlitten fahren

Sleðaævintýri
Sleðafjör eins og það gerist best.

meira >>

Winterurlaub im Lungau

Vetraríþróttir
Fyrir utan skíðabrekkurnar er fjöldi annarra útivistarmöguleika í boði.

meira >>

       
Skischule Otto

Hefur þig alltaf langað að læra á skíði eða viltu öðlast betri skíðatækni? Gríptu tækifærið núna

meira >>