Snowboarden

Skiurlaub

Skíði / snjóbretti

Í fimm mánuði er Lungau vetrarparadís fyrir skíðafólk og alla snjóþyrsta. Lungau skiptist í fjögur skíðasvæði sem samtals státa sig af um 300 km af troðnum brekkum og 62 lyftum við allra hæfi. Svæðin eru sérstaklega fjölskylduvæn og raðir við lyfturnar eru sjaldgæf sjón.

Hægt er að kaupa skíðapassa fyrir hvert svæði fyrir sig eða kaupa “Lungo” pakkann sem gefur aðgang að öllum skíðasvæðunum fjórum. Góðir skíðaskólar eru í boði fyrir börn og fullorðna, t.d. Otto´s Skischule.

Á heimasíðunni www.lungo.at er hægt að lesa um öll skíðasvæðin. Ef smellt er á Panoramakarte sést kort yfir allt svæðið.

 

Skíðasvæðin fimm

 

Obertauern
Aineck
Katschberg
Fanningberg
Großeck-Speiereck

 

Áhugaverðar heimasíður

 

Pistenpanorama
Liftpasspreise
WEBcams


   

 

Skíðaganga

Yfir 200 km af samliggjandi skíðagöngusporum liggja frá litlu bæjunum yfir í nærliggjandi dali og teygja sig í allt að 1800 m hæð. Sporin eru vel merkt og skiptast í þrjú erfiðleikastig og henta því byrjendum sem og kröfuharðari skíðagöngufólki. Einnig eru 70 km af spori sérstaklega útbúin fyrir frjálsa aðferð.

Hægt er að leigja gönguskíði og allan útbúnað í sportbúðinni í bænum eða við skíðalyftur þar sem skíðaleiga er til staðar

 

langlaufen,skating
   

Rodeln,Eislaufen,Pferdeschlittenfahrt

Vetrarfrístundir

Það er ekki bara í skíðabrekkunum sem fólk nýtur tilverunnar í góðum félagsskap – þar fyrir utan bíður úrval annarra útivistarmöguleika.

Upplagt er að sýna tilþrif á skautum, skella sér í “snow tubing” eða uppgötva leynda hæfileika í krullu. Fólk í rómantískari hugleiðingum getur hins vegar notið vetrardýrðarinnar í hestasleðaferð að kvöldlagi undir stjörnubjörtum himninum og látið fákinn leiða sig inn í sannkallaðan ævintýraheim alpanna.